tag:blogger.com,1999:blog-154916637586665782.post1019650593489858762..comments2023-03-02T08:31:25.430+00:00Comments on Jón Garðar: Áfram niður .. eða upp ?Jón Garðarhttp://www.blogger.com/profile/00822275145503306205noreply@blogger.comBlogger1125tag:blogger.com,1999:blog-154916637586665782.post-46638935144833419492007-12-06T14:56:00.000+00:002007-12-06T14:56:00.000+00:00Það er hins vegar frekar pirrandi að vídeóleiguhei...Það er hins vegar frekar pirrandi að vídeóleiguheilkennið komi upp aftur og aftur í okkur.
Alltaf endum við með öll eggin í sömu körfu - allir fara að gera það sama og þegar hin hefðbundna átta ára sveifla beinir viðkomandi bransa niður á við fer allt á vonarvöl.
Þá rjúka menn til og finna eitthvað annað og allir rjúka í það. Orkubransinn?
Á meðan drabbast drifkraftur miðstéttarinnar niður, litlu og meðalstóru fyrirtækin sem skapa störfin. Þau fá enga athygli af því að 'dílarnir' eru ekki nógu stórir eða ekki í geira sem er í tísku þá og þá stundina.
Hvað heldurðu að gerist á næsta ári þegar bankarnir fara að spara eftir að M&A tekjurnar þeirra þurrkast upp út af skorti á lánsfé? Hvað heldurðu að margir fjármálarar þurfi allt í einu að finna sér vinnu?
Og ég er hræddur um að gengi þeirra eigi eftir að fara neðar áður en það þokast upp aftur, þar sem þeir hafa verið að fá tekjurnar sínar og hagnaðinn af því að allt gangi smurt og að þeir séu aðeins sneggri en hinir. Núna er smurolían á þrotum og fyrirsjáanlegur nokkurra mánaða skortur á henni - og hvað verður þá um 1. ársfjórðung næsta árs? Eða 2.?Anonymousnoreply@blogger.com